Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok september 1999 og til samanburðar í lok desember 1998ásamt breytingum í september og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankansstyrktist um 3,1 milljarð króna í september og nam í lok mánaðarins 34,7milljörðum króna (jafnvirði 486 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).Frá ársbyrjun hafði forðinn styrkst um 5 milljarða króna. Styrkinggjaldeyrisforðans í september er tímabundin og skýrist af erlendumlánahreyfingum ríkissjóðs til skamms tíma í því skyni að draga úr markaðsáhættuvegna komandi áramóta.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 2,4 milljarðakróna í september og höfðu lækkað um 3,8 milljarða króna frá áramótum. Í lokseptember námu erlend langtímalán bankans 1,3 milljörðum króna og höfðu lækkaðum 3,9 milljarða króna frá ársbyrjun. Seðlabankinn átti engin viðskipti áinnlendum millibankamarkaði með gjaldeyri í september. Gengi íslensku krónunnar,mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 0,6% í mánuðinum.
HeildareignSeðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,9 milljörðum króna í septemberlokmiðað við markaðsverð og lækkaði um 1,4 milljarða króna í mánuðinum. Breytinginfólst öll í sölu og innlausn ríkisvíxla, en í lok mánaðarins nam ríkisvíxlaeignbankans 2,4 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðuum 1,7 milljarða króna í september og námu þær 15,9 milljörðum króna í lokmánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,6 milljarða króna ímánuðinum og voru 8,5 milljarðar í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóðog ríkisstofnanir lækkuðu um 5,2 milljarða króna í september og voru þærneikvæðar um 12 milljarða króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankansdróst saman um 0,5 milljarða króna í mánuðinum og nam 23,3 milljörðum króna ílok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 64/1999
6. október 1999