Seðlabanki Íslands hefur í dag útgáfu ítarlegs talnaefnis á heimasíðu sinni,www.sedlabanki.is. Þar munu vikulegabirtast nýjar tölfræðilegar upplýsingar um íslenskt efnahagslíf sem unnar eru íSeðlabankanum, og varða þær einkum þá þætti sem heyra beint undir verksviðSeðlabanka Íslands. Talnaefni þetta var að hluta til birt í Hagtölum mánaðarinssem Seðlabankinn gaf út frá 1974 þar til í september sl. Stefnt er aðreglubundinni birtingu hinna vikulegu hagtalna, Hagtalna Seðlabankans, kl. 16 ámánudögum. Hver vikuleg birting er stöðluð, þ.e. hún hefur að geyma sömu töflurhverju sinni, en með nýjum tölum þar sem við á.
Jafnframt verður súnýbreytni tekin upp að birta daglega á heimasíðunni nýjar upplýsingar um gengiog vexti á innlendum mörkuðum. Þær upplýsingar verða birtar um hádegi hvernvirkan dag.
Þeir sem þess óska geta gerst áskrifendur að fjölritaðrimánaðarlegri útgáfu af talnaefninu, Hagtölum Seðlabankans, gegn greiðsluáskriftargjalds. Fyrir þá sem hafa greiðan aðgang að veraldarvefnum er hinsvegar handhægara og ódýrara að nálgast töflusafnið á heimasíðubankans.
Þessar breytingar eru liður í þeirri viðleitni Seðlabanka Íslands aðkoma upplýsingum á framfæri við almenning með skilvirku móti og jafnframt aðverða við þeim kröfum sem alþjóðlegir staðlar og upplýsingatækni kalla á hverjusinni.
Áskriftarsími Seðlabanka Íslands er 569-9785.
Nánari upplýsingarveita bankastjórar Seðlabanka Íslands, Sveinn E. Sigurðsson framkvæmdastjóritölfræðisviðs bankans varðandi útgáfu töflusafnsins (Hagtalna Seðlabankans) ogStefán Jóhann Stefánsson ritstjóri varðandi heimasíðuna, í síma 569-9600.
Nr.67 /1999
25. október 1999