Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 4. nóvember 1999 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok október 1999 og til samanburðar í lok desember 1998ásamt breytingum í október og frá ársbyrjun.

 GjaldeyrisforðiSeðlabankans dróst saman um 0,6 milljarða króna í október og nam í lokmánaðarins 34,1 milljarði króna (jafnvirði 479 milljóna bandaríkjadala á gengi ímánaðarlok). Frá ársbyrjun hafði forðinn styrkst um 4,4 milljarða króna. Íseptember sl. styrktist gjaldeyrisforðinn vegna tímabundinna erlendralánahreyfinga ríkissjóðs og gætti áhrifa þess í stöðu forðans í lok mánaðarins(sbr. frétt bankans nr. 64/1999). Svipaðra áhrifa gætti í lokoktóber.

Seðlabankinn átti engin viðskipti á innlendum millibankamarkaði meðgjaldeyri í október. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölugengisskráningar, hækkaði um 1,6% í mánuðinum.

Erlend skammtímalán bankanshækkuðu um 1,1 milljarð króna í október en lækkuðu um 2,7 milljarða frá áramótumtil loka október. Í lok október námu erlend langtímalán bankans 1,1 milljarðikróna og höfðu lækkað um 4 milljarða króna frá ársbyrjun.

HeildareignSeðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,3 milljörðum króna í októberlokmiðað við markaðsverð og lækkaði um 0,5 milljarða króna í mánuðinum. Lækkuninfólst öll í sölu og innlausn ríkisvíxla. Í lok mánaðarins nam ríkisvíxlaeignbankans 1,9 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukustum 2,2 milljarða króna í október og námu 18,1 milljarði króna í lok mánaðarins.Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 2,8 milljarða króna í mánuðinum ogvoru 5,7 milljarðar króna í lok hans.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir hækkuðu um 2,4 milljarða króna í október og voru neikvæðar um 9,7milljarða króna í lok mánaðarins. 

Grunnfé bankans dróst saman um 0,2milljarða króna í mánuðinum og nam 23,1 milljörðum króna í lokhans.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 71/1999

4. nóvember 1999