Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í loknóvember 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í nóvemberog frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 2,7milljarða króna í nóvember og nam í lok mánaðarins 31,4 milljörðum króna(jafnvirði 433 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Frá ársbyrjunhafði forðinn styrkst um 1,6 milljarða króna. Tímabundnar erlendarlánahreyfingar ríkissjóðs leiddu til stækkunar forðans á haustmánuðum (sbr.fréttir bankans nr. 64/1999 og 71/1999) en þær gengu að fullu til baka ínóvember. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar var þvísem næst óbreytt í mánuðinum.
Erlend skammtímalán Seðlabankans hækkuðu um2,5 milljarða króna í nóvember. Í lok mánaðarins námu erlend langtímalán bankans1,2 milljörðum króna og höfðu lækkað um 3,9 milljarða króna frá ársbyrjun.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 7,4 milljörðumkróna í nóvemberlok miðað við markaðsverð og lækkaði um 0,9 milljarða króna ímánuðinum.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 5,7 milljarðakróna í nóvember og námu 23,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir hækkuðu um 2,8 milljarða króna í mánuðinum og voru 8,5milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir hækkuðu um 1,3 milljarða króna í nóvember og voru þær neikvæðarum 8,4 milljarða króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans jókst um 4,7milljarða króna í mánuðinum og nam 27,8 milljörðum króna í lokhans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 77/1999
6. desember 1999