Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var 31,9 milljarða krónaviðskiptahalli við útlönd á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 31,4milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Fjárinnstreymi mældist vera um 35,7milljarðar króna janúar-september 1999, sem skýrist af miklum lántökum ogskuldabréfaútgáfu innlendra aðila í útlöndum. Beinar fjárfestingar erlendraaðila á Íslandi voru einnig umtalsverðar á þessu tímabili. Fjárútstreymi vegnaerlendra verðbréfakaupa mældist 19,7 milljarðar króna en heldur hægði á þeimviðskiptum á þriðja fjórðungi ársins. Aðrar erlendar eignir, innstæður, lán ogviðskiptakröfur, hafa einnig aukist töluvert á þessu ári. GjaldeyrisforðiSeðlabankans jókst á fyrstu níu mánuðum ársins um 5 milljarða króna og nam 34,7milljörðum króna í lok september 1999.
Viðskiptahallinn var 12,4 milljarðar króna á þriðja fjórðungi 1999 samanboriðvið 10,5 milljarða króna halla á sama tímabili árið áður. Meiri halla í ár márekja til óhagstæðari vöruskiptajafnaðar, einkum vegna samdráttar í útflutningisjávarafurða. Horfur eru á að viðskiptahallinn á fjórða ársfjórðungi verðitöluvert meiri en í fyrra, m.a. vegna þess að undir lok síðasta árs var stórfarþegaflugvél seld úr landi. Því eru allar líkur á að viðskiptahallinn á árinuí heild verði meiri en gert var ráð fyrir í þjóðhagsáætlun í október sl. ogmeiri en í fyrra er hann nam 33,4 milljörðum króna.
Taflan að neðansýnir samandregið yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd. Á meðfylgjandi yfirlitumeru ítarlegri upplýsingar um greiðslujöfnuðinn og erlenda stöðu þjóðarbúsins,sem hefur versnað vegna viðskiptahallans.
Nr. 79/1999
9. desember 1999