Seðlabanki Íslands hefur gert nýja verðbólguspá fyrir árið 2000 í ljósinýjustu mælinga á vísitölu neysluverðs og upplýsinga um þróun undirliggjandistærða. Seðlabankinn spáir nú 5% verðbólgu á milli ársmeðaltala 1999 og 2000 og3,8% verðbólgu frá upphafi til loka árs 2000.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,4% frá þriðja til fjórða ársfjórðungs 1999sem samsvarar 5,9% verðbólgu á heilu ári. Spá Seðlabankans í október sl. gerðiráð fyrir 1% hækkun. Frávikið, sem er innan tölfræðilegra skekkjumarka, stafaðiað hluta af áframhaldandi hækkun bensínverðs og frekari hækkun á verðiíbúðarhúsnæðis á síðustu mánuðum ársins.
Verðlag hækkaði um 3,4% frá ársmeðaltali 1998 til 1999 og um 5,8% frá upphafitil loka árs 1999. Meiri verðbólga hefur ekki mælst á milli ára hér á landisíðan 1993 og frá upphafi til loka árs (janúar til janúar) síðan 1991. Spábankans í október sl. gerði ráð fyrir 3,3% hækkun á milli ára og 4,6% fráupphafi til loka ársins.
Ný spá Seðlabankans gerir ráð fyrir að verðbólga verði 5% á milliársmeðaltala 1999 og 2000 og 3,8% frá upphafi til loka árs 2000. Gert er ráðfyrir að nokkuð dragi úr 12 mánaða hækkun verðlags síðar á árinu þegar áhrifverðhækkana fyrra árs og launahækkana sem gert er ráð fyrir á fyrri hluta þessaárs taka að dvína. Bankinn spáir nú nokkuð meiri verðbólgu en í október sl. enþá var gert ráð fyrir að hún yrði 4,1% á milli áranna 1999 og 2000 og 3,7% fráupphafi til loka ársins. Mestu veldur meiri hækkun vísitölu neysluverðs ásíðasta fjórðungi 1999 en gert var ráð fyrir í október. Einnig er nú spáð meiriverðbólgu á fyrsta fjórðungi yfirstandandi árs, aðallega sökum meiriverðhækkunar á opinberri þjónustu en fyrirséð var í október. Auk þess er gertráð fyrir að íbúðarhúsnæði hækki enn umfram almennar verðlagshækkanir. Á mótikemur að gengi krónunnar er nú 0,7% sterkara en þegar spá bankans var gerð íoktóber síðastliðnum.
Óvissa ríkir um niðurstöðu kjaraviðræðna en í forsendum hinnar nýju spár ergert ráð fyrir að launakostnaður hækki um 6½% yfir árið 2000. Er þá talin meðsamningsbundin hækkun launa ýmissa hópa nú í janúar og launaskrið á árinu. Gerter ráð fyrir 2% framleiðniaukningu á árinu 2000 í framhaldi af 2½% aukningu ásíðasta ári. Reiknað er með að innflutningsverðlag í erlendri mynt hækki um 2%yfir árið og skv. venju er reiknað með óbreyttu gengi frá útgáfudegispárinnar.
Verði samið um meiri launahækkanir en gert er ráð fyrir í spánni verðurverðbólgan meiri. Munar þar ekki aðeins um bein áhrif launakostnaðar á verðlagheldur eykst einnig hætta á að þrýstingur myndist á gengi krónunnar. Þar að aukier hætta á að miklar verðbólguvæntingar festist í sessi.
Sem dæmimá nefna að hækki launakostnaður samtals um 9% yfir árið, að óbreyttu gengi, mábúast við að verðbólga verði u.þ.b. 6% milli ára og rúmlega 5% frá upphafi tilloka ársins. Veikist krónan hins vegar um 4% í kjölfarið gæti verðbólgan orðiðrúmlega 6½%. Verði launabreytingar hóflegri og styrkist gengi krónunnar verðurverðbólga að sama skapi minni en hér er gert ráð fyrir. Þannig má ætla að 5%hækkun launakostnaðar á árinu og áframhaldandi styrking krónunnar í þessum ognæsta mánuði hafi í för með sér rúmlega 4% verðbólgu milli ára og nærri 2½% yfirárið. Slík niðurstaða mundi skila álíka kaupmáttaraukningu yfir árið og spábankans gerir ráð fyrir.
Að lokum má geta þess að þetta er síðasta verðbólguspá Seðlabankans sembirt er í sérstakri frétt. Framvegis verða verðbólguspárnar birtar íársfjórðungsriti bankans, Peningamálum, fyrst í maí nk.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson aðalhagfræðingur bankans ísíma 569 9600
Nr. 3/2000
24. janúar 2000