Meginmál

Vextir Seðlabanka Íslands hækkaðir og vikmörk gengisstefnunnar víkkuð

ATH: Þessi grein er frá 11. febrúar 2000 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Að höfðu samráði við ríkisstjórn hefur bankastjórn Seðlabanka Íslands ákveðiðað víkka vikmörk gengisstefnunnar um 3% í hvora átt frá mánudeginum 14. febrúar2000. Þau verða því hér eftir 9% í hvora átt frá miðgildi í stað 6% áður.Breytingin skapar skilyrði til frekara aðhalds í peningamálum í því skyni aðdraga úr verðbólgu.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur einnig ákveðið að hækka vexti bankans um0,3 prósentustig. Vaxtahækkunin hefur þann tvíþætta tilgang að auka vaxtamuninngagnvart útlöndum á ný eftir nýlegar vaxtahækkanir í mikilvægum viðskiptalöndumog að undirstrika enn frekar ásetning bankans um að nýta aukið svigrúmgengisstefnunnar til þess að draga úr verðbólgu.

 Víkkun vikmarkanna felur í sér viðbótarskref til þess að aukasveigjanleika gengisstefnunnar. Í september 1995 voru vikmörkin víkkuð úr 2¼% íhvora átt í 6%. Sú ráðstöfun var fyrst og fremst gerð í varúðarskyni sakir þessað í upphafi þess árs var síðustu hömlum á skammtímahreyfingum fjármagns til ogfrá landinu aflétt. Gengi krónunnar hélst innan gömlu markanna þar til í maí1998. Í kjölfar kjarasamninga í apríl 1997 stuðlaði aðhaldssöm peningastefna aðhækkun gengis krónunnar innan vikmarkanna og átti það sinn þátt í að halda afturaf verðbólgu. Á síðasta ári jókst verðbólga mjög. Peningastefnunni var beittgegn henni og vaxtahækkanir Seðlabankans stuðluðu að hækkun á gengi krónunnar áseinni hluta ársins. Það varð hæst 28. desember sl. 4,9% yfir miðgengi, þ.e.rúmlega 1% innan vikmarkanna. Bankinn hefur hins vegar engin viðskipti átt ámillibankamarkaði fyrir gjaldeyri síðan 14. júní á síðasta ári og hefur því ekkihaft áhrif á gengi krónunnar með beinum hætti síðan þá.

 Seðlabanki Íslands telur við ríkjandi aðstæður nauðsynlegt að veitabaráttunni gegn verðbólgu forgang. Sem fyrr segir varð gengi krónunnar hærrainnan vikmarkanna undir lok desember sl. en áður hafði þekkst. Við þær aðstæðurvirtist sem vikmörkin hömluðu frekari hækkun gengisins, jafnvel þótt enn værinokkurt rými innan þeirra. Með því að víkka vikmörkin er komið í veg fyrir aðgengisstefnan hamli frekara aðhaldi í peningamálum. Víkkun vikmarkanna nú oghækkun vaxta Seðlabankans fela því í sér skýran ásetning um að peningastefnanskuli öðru fremur stuðla að lítilli verðbólgu.

 Eftir breytinguna verða vikmörk gengisskráningarvísitölunnar 104,66 og125,36 en miðgildið verður áfram óbreytt, þ.e. 115,01.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísl. Gunnarsson formaður bankastjórnarSeðlabanka Íslands í síma 560-9600.

Nr. 7/2000

11. febrúar 2000