Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokfebrúar 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í febrúarog frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð í stað ífebrúar og nam 32,2 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 441 milljónabandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt meðvísitölu gengisskráningar, hækkaði um 1,3 % í febrúar.
Erlend skammtímalán bankans námu 9,6 milljörðum króna í febrúar og höfðuhækkað um 4,7 milljarða króna í mánuðinum, einkum vegna greiðslu afborgana ogvaxta af erlendum lánum ríkissjóðs.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,1 milljarði krónaí febrúarlok miðað við markaðsverð og breyttist ekki í mánuðinum.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,9 milljarða króna ímánuðinum og námu 30,5 milljörðum króna í lok hans. Kröfur á aðrarfjármála-stofnanir lækkuðu um 1,2 milljarða króna í mánuðinum og voru 5,5milljarðar króna í lok hans.
Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í bankanum lækkuðu um 12,1milljarð króna í febrúar og námu um 8,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans hækkaði um 4,2 milljarða króna í mánuðinum og nam 25,2milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórarSeðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 8/2000
6. mars 2000