Meginmál

Greiðslujöfnuður við útlönd 1999

ATH: Þessi grein er frá 10. mars 2000 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var viðskiptahallinn 42,8milljarðar króna á árinu 1999 samanborið við 40,1 milljarða króna halla áriðáður. Aukinn halli í viðskiptum við útlönd stafar af lakari jöfnuðiþjónustuviðskipta og auknum vaxtagreiðslum af erlendum skuldum, en hallinn ávöruviðskiptum varð 2,6 milljörðum króna minni en árið áður. Eftir sem áður varhann stærsti þáttur viðskiptahallans og nam 22,4 milljörðum króna á árinu 1999.Í heild var fjármagnsjöfnuður við útlönd jákvæður um 58,1 milljarð króna.Fjármagnsinnstreymi stafar að mestu leyti af erlendum lántökum lánastofnana ogatvinnufyrirtækja en umtalsvert fjárútstreymi var vegna fjárfestinga í erlendumverðbréfum og aukinna innlána í útlöndum. Bein fjárfesting Íslendinga erlendisvar um 5 milljarðar króna, sem var álíka fjárhæð og árið áður, en beinfjárfesting erlendra aðila hér á landi varð heldur minni á árinu 1999 eða um 6,5milljarðar króna. Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 5,3 milljarða króna ognam um 35,8 milljörðum króna í árslok.

Eftirfarandi tafla sýnir samandregið yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd.Ítarlegar upplýsingar um greiðslujöfnuðinn og erlenda stöðu þjóðarbúsins er aðfinna í meðfylgjandi yfirlitum og einnig í Hagtölum Seðlabankans á heimasíðuhans.

Athygli er vakin á því að uppgjörsaðferð þáttatekna hefur verið breytt tilsamræmis við alþjóðlega staðla sem gilda um uppgjör þjóðhagsreikninga. Íþáttatekjum (vöxtum, arði og launum) eru ekki lengur taldar breytingar ámarkaðsvirði erlendra verðbréfa í eigu Íslendinga. Nú eru einungis taldar tilþáttatekna arð- og vaxtagreiðslur af verðbréfunum. Afleiðing þessa er sú aðviðskiptahallinn mælist hafa verið meiri á árinu 1998 og á fyrstu níu mánuðumársins 1999 en áður hafði verið greint frá. Í spá Þjóðhagsstofnunar í desembersl. var gert ráð fyrir að viðskiptahallinn 1999 yrði 38 milljarðar króna. Aðteknu tilliti til breyttra uppgjörsaðferða varð útkoman áþekk spánni,vöruskiptahallinn varð heldur minni en þjónustuhallinn meiri en búist varvið.

Hækkun á markaðsvirði erlendra hlutabréfa var mikil á síðustu tveimur árum;nær 20% 1998 og 30% 1999. Talið er að í árslok 1999 hafi Íslendingar áttjafnvirði 124 milljarða króna í erlendum verðbréfum á markaðsvirði. Þar af voruum 87% í hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða.

Hrein erlend staða þjóðarbúsins var neikvæð um 314 milljarða króna í árslok1999 samanborið við 285 milljarða króna 1998. Hún hafði því versnað um 29milljarða króna sem er mun minna en viðskiptahallinn gaf tilefni til. Skýringará þessum mun eru nokkrar en þyngst vegur hækkun á markaðsvirði erlendraverðbréfa í eigu Íslendinga auk gengishækkunar íslensku krónunnar. Einnig kannstór skekkjuliður greiðslujafnaðar sem var neikvæður um 15,3 milljarða króna, aðbenda til þess að fjárfesting innlendra aðila í útlöndum hafi verið meiri entekist hefur að mæla með reglulegri gagnaöflun Seðlabankans.

Nánari upplýsingar veitir Jakob Gunnarsson deildarstjóri á tölfræðisviðiSeðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 10/2000

10. mars 2000