Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokapríl 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í apríl ogfrá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans breyttist nánastekkert í apríl og nam 32,3 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 429milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mæltmeð vísitölu gengisskráningar, styrktist í mánuðinum um 0,75%.
Erlendskammtímalán bankans voru nánast óbreytt í mánuðinum og námu 8,4 milljörðumkróna í apríllok.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam8,7 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð og hækkaði um 0,5milljarða króna í mánuðinum. Þar af eru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 5,8milljarðar króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 1,4milljarða króna í apríl og námu 30,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur áaðrar fjármálastofnanir hækkuðu einnig um 1,8 milljarða króna í mánuðinum ogvoru 7,9 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir lækkuðu um 2,5 milljarða króna í apríl og voru neikvæðar um 9,9milljarða króna í lok mánaðarins. Þar með höfðu nettókröfur bankans á ríkissjóðog ríkisstofnanir hækkað um 1,6 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankanshækkaði lítillega í mánuðinum og nam 27 milljörðum króna í lokhans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 12/2000
5. maí 2000