Í dag verður kynnt í Washington útgáfa á peningum úr silfri til þess aðminnast fundar Leifs Eiríkssonar á Norður-Ameríku. Minnispeningarnir eru tveir,annar gefinn út af Seðlabanka Íslands og hinn af bandarísku myntsláttunni.Peningarnir verða seldir saman í öskju og einnig hvor í sínu lagi. Þeir eruslegnir hjá bandarísku myntsláttunni, U.S. Mint, og mun hún sjá um sölu þeirra áerlendum markaði. Minnispeningarnir eru úr silfri að 9/10 hlutum, 26,73 grömm aðþyngd, 38,1 mm í þvermál. Íslenski peningurinn verður löglegur gjaldmiðill aðverðgildi 1000 krónur í sérunninni gljásláttu og er hámarksfjöldi sleginnapeninga 150.000.
Á annarri hlið íslenska peningsins er mynd af styttu Stirling Calder af LeifiEiríkssyni á Skólavörðuhæð en hana gaf bandaríska þingið íslensku þjóðinni árið1930 í tilefni 1000 ára afmælis Alþingis. Á hinni hliðinni er stílfærð mynd aflandvættunum eins og þær birtast á gildandi mynt. Peninginn teiknaði ÞrösturMagnússon teiknari FIT.
Hagnaður af sölu beggja peninganna rennur í sérstakan sjóð sem kenndur er viðLeif Eiríksson. Hann mun styrkja íslenska og bandaríska námsmenn til náms íBandaríkjunum og á Íslandi. Í stjórn sjóðsins, sem varðveittur verður hjáháskólanum í Virginíu, eru fimm stjórnarmenn, tveir skipaðir af rektor háskólansí Virginíu, einn skipaður af forsætisráðherra og einn af bankastjórn SeðlabankaÍslands. Oddamaður verður valinn af stjórn til tveggja ára í senn og verður hanntil skiptis frá Bandaríkjunum og Íslandi.
Sala peninganna á Íslandi hefst síðar og verður kynnt sérstaklega þegar þarað kemur.
Nánari upplýsingar veitir bankastjórn Seðlabanka Íslands.
Nr. 16/2000
21. júní 2000