Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í ágúst

ATH: Þessi grein er frá 6. september 2000 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands ílok ágúst 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í ágústog frá ársbyrjun. 

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans hækkaði um 0,4milljarða króna í ágúst og nam 35,1 milljarði króna í lok mánaðarins (jafnvirði436 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).

Á millibankamarkaði meðgjaldeyri, þar sem Seðlabankinn keypti gjaldeyri fyrir 1 milljarð króna, namveltan alls 50,1 milljarði króna í ágúst. Gengi íslensku krónunnar, mælt meðvísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,8%.

Erlend skammtímalánbankans lækkuðu um 5,5 milljarða króna í mánuðinum og námu þau 11,7 milljörðumkróna í ágústlok.  Síðasta afborgun var greidd af eina langtímalániSeðlabankans og er það nú uppgreitt.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankansnámu 7,7 milljörðum króna í ágústlok miðað við markaðsverð og lækkuðu um 2milljarða króna í mánuðinum.  Þar af eru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs4,8 milljarðar króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í ágústog námu 27,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrarfjármálastofnanir lækkuðu einnig um 0,3 milljarða króna í mánuðinum og voru 7,8milljarðar króna í lok hans.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana íSeðlabankanum hækkuðu um 5,9 milljarða króna í ágúst og námu 9,1 milljarði krónaí lok mánaðarins. Þar með hafa nettóinnstæður ríkis í bankanum lækkað um 2,4milljarða króna frá áramótum.

Grunnfé bankans lækkaði um 3 milljarða króna ímánuðinum og nam 26,1 milljarði króna í lok hans.

 Nánari upplýsingarveita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma569-9600.

Nr. 20/2000

6. september 2000