Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokseptember 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum íseptember og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóðþví sem næst í stað í september og nam 35,2 milljörðum króna í lok mánaðarins(jafnvirði 424 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslenskukrónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um1,95%.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um tæpa 3 milljarða króna ímánuðinum og námu 14,7 milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf íeigu bankans námu 6,8 milljörðum króna í septemberlok miðað við markaðsverð,lækkuðu um 0,9 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs íeigu bankans námu 3,9 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans áinnlánsstofnanir jukust um 0,9 milljarða króna í september og námu 28,6milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukusteinnig í mánuðinum og voru 9,1 milljarður króna í lok hans.
Nettóinnstæðurríkissjóðs og ríkisstofnana í bankanum lækkuðu um 4,3 milljarða króna íseptember og námu 4,9 milljörðum króna í lok mánaðarins (nettókröfur bankansvoru neikvæðar um þá fjárhæð). Þar með höfðu nettóinnstæður ríkissjóðs ogríkisstofnana lækkað um 6,7 milljarða króna frá lokum síðasta árs.
Grunnfébankans jókst um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 27,9 milljörðum króna ílok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands ogErla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utanSeðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaðaSeðlabankans nettó sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnumerlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi kröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir nettó, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar kröfur á aðra en ríkiðbrúttó, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 22/2000
5. október 2000