Meginmál

Tómas Örn Kristinsson settur framkvæmdastjóri peningamálasviðs Seðlabanka Ísland

ATH: Þessi grein er frá 6. október 2000 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur sett Tómas Örn Kristinssonframkvæmdastjóra peningamálasviðs bankans frá 23. október n.k. í stað YngvaArnar Kristinssonar sem ráðinn hefur verið bankastjóri dótturbanka BúnaðarbankaÍslands hf. í Lúxemborg. Tómas lauk prófi í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands1986 og MBA prófi frá Rockford College í Rockford, Illinois í Bandaríkjunum1988. Hann starfaði við sjóða-stjórnun, síðar fjármálastjórn, hjáFjárfestingarfélagi Íslands hf. frá 1988 til 1991, sinnti sérverkefnum fyrirSeðlabanka Íslands 1991 til 1992, starfaði hjá Verðbréfa-þingi Íslands frá 1992til 1996, m.a. sem framkvæmdastjóri, var síðan ritstjóri Vís-bendingar þar tilhann réðst til peningamálasviðs Seðlabanka Íslands 1999. Tómas hefur veriðstjórnarformaður Kvótaþings Íslands frá því í maí 1998.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands í síma569-9600.

Nr. 23/2000

6. október 2000