Meginmál

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

ATH: Þessi grein er frá 31. október 2000 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans,þ.e. ávöxtun í endurhverfum viðskiptum hans við lánastofnanir, um 0,8prósentustig á næsta uppboði sem fram fer þriðjudaginn 7. nóvember n.k. Ávöxtuní tilboðum bankans á Verðbréfaþingi Íslands og vextir á viðskiptareikningum,daglánum og bindireikningum lánastofnana í Seðlabankanum hækka um 0,8prósentustig á morgun, miðvikudaginn 1. nóvember.

Frá því að Seðlabanki Íslands hækkaði vexti í júní sl. hafa horfur umverðbólgu á næsta ári versnað vegna lækkunar á gengi krónunnar og mikillarspennu á innlendum vöru- og vinnumarkaði. Þá er lítið lát á útlánaaukningubankanna. Seðlabankar ýmissa mikilvægra viðskiptalanda hafa hækkað vexti sína aðundanförnu. Frá því um mitt árið og þar til nú hefur því munur innlendra ogerlendra skammtímavaxta minnkað um 0,6 til 0,7 prósentustig. Þessi þróun hefurveikt gengi krónunnar. Seðlabankinn telur því óhjákvæmilegt að herða að ípeningamálum í því skyni að ná verðbólgu niður á viðunandi stig. Jafnframtleitast bankinn með þessu við að stuðla að minni lánsfjár-eftirspurn. 

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísl. Gunnarsson formaður bankastjórnarSeðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 25/2000

31. október 2000