Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. nóvember 2000 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokoktóber 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í októberog frá ársbyrjun. 

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næstí stað í október og nam 35,1 milljarði króna í lok mánaðarins (jafnvirði 404milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Gengi íslensku krónunnar,mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 2,3%.

Erlendskammtímalán bankans lækkuðu um 3,8 milljarða króna í mánuðinum og námu þau 10,9milljörðum króna í októberlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 6,6milljörðum króna í október lok miðað við markaðsverð, lækkuðu um 0,2 milljarðakróna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 3,8milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 2,6milljarða króna í október og námu 31,2 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust einnig í mánuðinum um 0,7 milljarðakróna og námu 9,9 milljörðum króna í lok hans.

Nettóinnstæður ríkissjóðs ogríkisstofnana í bankanum hækkuðu um 6,5 milljarða króna í október og námu 11,4milljörðum króna í lok mánaðarins (nettókröfur bankans voru neikvæðar um þáfjárhæð).

Grunnfé bankans jókst um 0,3 milljarða króna í mánuðinum og nam28,2 milljörðum króna í lok hans.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórarSeðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utanSeðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaðaSeðlabankans, nettó, sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnumerlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi kröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, nettó, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar kröfur á aðra en ríkiðbrúttó, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 26/2000

6. nóvember 2000