Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok nóvember 2000 og til samanburðar í lok desember 1999ásamt breytingum í nóvember og frá ársbyrjun.
GjaldeyrisforðiSeðlabankans dróst saman um 0,3 milljarða króna í nóvember og nam 34,8milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 399 milljóna bandaríkjadala á gengií mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar,lækkaði í mánuðinum um 1,3%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaðifyrir 4,7 milljarða króna.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 4,5milljarða króna í mánuðinum og námu þau 15,4 milljörðum í nóvember lok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 7,1 milljarði króna í nóvember lokmiðað við markaðsverð, jukust um 0,5 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráðverðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna.
KröfurSeðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman um 2,6 milljarða króna í nóvember og námu 28,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir jukust í mánuðinum um 2,3 milljarða króna og voru 12,2milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir hækkuðu um 2,8 milljarða króna í nóvember og voru neikvæðar um8,6 milljarða króna í lok mánaðarins. Þar með hafa nettókröfur á ríkissjóðog ríkisstofnanir hækkað um 3 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankansdróst saman um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 25,5 milljörðum króna ílok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands ogErla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utanSeðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaðaSeðlabankans nettó sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnumerlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi kröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir nettó, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar kröfur á aðra en ríkiðbrúttó, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 28/2000
6. desember 2000