Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 8. janúar 2001 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokdesember 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í desember2000 og frá ársbyrjun 2000. 

Þar sem áramótauppgjöri og endurskoðun erekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 2000 bráðabirgðatölur (og kunna þær aðtaka breytingum í endanlegu uppgjöri).

Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróstsaman um 0,5 milljarða króna í desember og nam 34,2 milljörðum króna í lokmánaðarins (jafnvirði 405 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengiíslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um1%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 0,5 milljarða króna ímánuðinum.

Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 0,4 milljarða króna ímánuðinum og námu 15,8 milljörðum króna í desemberlok.

Markaðsskráð verðbréfí eigu bankans námu 6,5 milljörðum króna í desemberlok miðað við markaðsverð oghöfðu dregist saman um 0,6 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréfríkissjóðs í eigu bankans námu 3,7 milljörðum króna í lok desember.

KröfurSeðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 10,4 milljarða króna í desember ognámu 39 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanirjukust um 0,9 milljarða króna í mánuðinum og voru 13,1 milljarður króna í lokhans.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir minnkuðu um 3,5milljarða króna í desember og voru neikvæðar um 12,1 milljarð króna í lokmánaðarins, þ.e. innstæður ríkissjóðs umfram skuldir námu 12,1 milljarði króna.Þar með höfðu nettókröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkað um 0,5 milljarðakróna á árinu.

Grunnfé bankans jókst um 6,9 milljarða króna í mánuðinum ognam 32,3 milljörðum króna í lok hans. Á árinu í heild dróst grunnfé bankanssaman um 3,8 milljarða króna.

Nánari upplýsingar veita bankastjórarSeðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utanSeðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans, sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 2/2001

8. janúar 2001