Hinn 26. janúar sl. var undirritaður samningur á milli Seðlabanka Íslands ogþýska bankans DePfa Europe um lánsheimild að fjárhæð 250 milljónirBandaríkjadala sem samsvarar liðlega 21 milljarði króna. Samningurinn er tilfimm ára og felur í sér hagstæð kjör fyrir Seðlabankann.
Lánssamningurinn við DePfa Europe kemur til viðbótar sambærilegum samningumvið nokkrar aðrar fjármálastofnanir. Fyrir hefur bankinn samningsbundinn aðgangað lánsfé, meðal annars hjá Alþjóðagreiðslubankanum BIS í Basel og norrænumseðlabönkum. Heildarfjárhæð þessara samninga nemur um 60 milljörðum króna. Aukþess hefur Seðlabankinn aðgang að lánsfé hjá fjölmörgum erlendumviðskiptabönkum.
Hinn nýi lánssamningur treystir stöðu Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði ogeykur svigrúm hans til aðgerða á þeim vettvangi.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Ólafur Ísleifssonframkvæmdastjóri alþjóðasviðs í síma 569-9600.
Nr. 5/2001
1. febrúar 2001