Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokjanúar 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í janúar2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,8 milljarða króna íjanúar og nam 35 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 410 milljónaBandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt meðvísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,98%. Seðlabankinn seldigjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 4,1 milljarð króna í janúar.
Erlendskammtímalán bankans hækkuðu um 5,8 milljarða króna í mánuðinum og námu 21,6milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 6,4milljörðum króna í janúarlok miðað við markaðsverð, drógust saman um 0,1milljarð króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu3,6 milljörðum króna í lok janúar.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanirlækkuðu um 2 milljarða króna í janúar og námu 37 milljörðum króna í lokmánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um 4,8 milljarða króna ogvoru 17,9 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans áríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 2,2 milljarða króna í janúar og voruneikvæðar um 14,3 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæðurríkissjóðs námu 14,3 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman um 4,8milljarða króna í mánuðinum og nam 27,6 milljörðum króna í lok hans.
Nánariupplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókarií síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans íerlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans íspariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréfannarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfurbankans á innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfurbankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalánsem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkjagjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferðutan Seðla-banka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármála-stofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 6/2001
6. febrúar 2001