Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. mars 2001 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok febrúar 2001 og til samanburðar í lok desember 2000ásamt breytingum í febrúar 2001 og frá ársbyrjun 2001. 

GjaldeyrisforðiSeðlabankans dróst saman um 0,5 milljarða króna í febrúar og nam 34,6milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 401 milljónar Bandaríkjadala ágengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölugengisskráningar, styrktist í mánuðinum um 0,25%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri ámillibankamarkaði fyrir rúmlega 1 milljarð króna í febrúar.

Erlendskammtímalán bankans drógust saman um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og námu20,9 milljörðum króna í lok hans.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu6,2 milljörðum króna í febrúarlok á markaðsverði, um 0,2 milljörðum króna minnaen í fyrra mánuði. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 3,4milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 1milljarð króna í febrúar og námu 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfurá aðrar fjármálastofnanir jukust um 0,8 milljarða króna og voru 18,7 milljarðarkróna í lok mánaðarins.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanirhækkuðu um 0,3 milljarða króna í febrúar og voru neikvæðar um 14 milljarða krónaí lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana námu 14milljörðum króna.

Grunnfé bankans jókst um 0,2 milljarða króna í febrúar ognam 27,9 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórarSeðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utanSeðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettó gjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettó kröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir , þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttó kröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 11/2001

6. mars 2001