Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok mars 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt
breytingum í mars 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans jókst um 1,4 milljarða króna í mars og nam 36 milljörðum króna í
lok mánaðarins (jafnvirði 395 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, veiktist í
mánuðinum um 2,8%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 6,8
milljarða króna í mars.
Erlend skammtímalán bankans jukust um 7,9 milljarða
króna í mánuðinum og námu 28,8 milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð
verðbréf í eigu bankans námu 4,8 milljörðum króna í marslok miðað við
markaðsverð, drógust saman um 1,4 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð
verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2 milljörðum króna.
Kröfur
Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 3,3 milljarða króna í mars og námu
41,2 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust
einnig í mánuðinum um 1,8 milljarða króna og voru 20,4 milljarðar króna í lok
mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 0,3
milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 13,6 milljarða króna í lok
mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 13,6 milljörðum
króna.
Grunnfé bankans dróst saman um 1,5 milljarða króna í marsmánuði og nam
26,4 milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar
Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi í milljónum króna
Staða í lok tímabils
Hreyfingar 2001
Desember 2000
Mars 2001
Frá áramótum
Í mars
Eignaliðir
Gjaldeyrisforði
34.285
36.017
1.732
1.430
Markaðsskráð verðbréf
6.546
4.765
-.1.782
-1.405
Ríkissjóðs
3.682
1.963
-1.718
-1.422
Annarra
2.685
2.801
-64
17
Kröfur á innlánsstofnanir
38.978
41.202
2.224
3.254
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir
13.074
20.443
7.370
1.760
Skuldaliðir
Erlendar skuldir til skamms tíma
15.763
28.822
13.059
7.971
Seðlar og mynt
8.672
8.325
-347
387
Almennar innstæður innlánsstofnana
2.495
2.691
196
1.739
Staða á bindireikningum innlánsstofnana
21.249
15.375
-5.874
-3.606
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana
743
42
-323
-143
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana
759
2.388
1.629
15
Liðir til skýringar
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó
18.522
7.194
-11.328
-6.542
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó
-12.119
-13.638
-1.518
343
Kröfur á aðra, brúttó
52.207
61.725
9.518
5.010
Grunnfé
32.416
26.391
-6.025
-1.479
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan
Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttó kröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 17/2001
5. apríl 2001