Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
apríl 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í apríl 2001
og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst
í stað í apríl og nam 36 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 374
milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar,
mælt með vísitölu gengisskráningar, veiktist í mánuðinum um 5,92%.
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó, batnaði um 2,1 milljarð vegna erlendra
lánahreyfinga ríkissjóðs.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 2,1 milljarð
króna í mánuðinum og námu 26,8 milljörðum króna í apríllok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,8 milljörðum króna í apríllok
miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans
námu 2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um
2,9 milljarða króna í apríl og námu 44,1 milljarði króna í lok mánaðarins.
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust einnig í mánuðinum um 1,7 milljarða
króna og voru 22,1 milljarður króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á
ríkissjóð og ríkisstofnanir 1ækkuðu um 2,2 milljarða króna í apríl og voru
neikvæðar um 15,8 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður
ríkissjóðs námu 15,8 milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst um 2,3 milljarða
króna í aprílmánuði og nam 28,7 milljörðum króna í lok hans.
Nánari
upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari
í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í milljónum króna
Staða í lok tímabils
Hreyfingar 2001
Desember
Apríl
Frá ára-
í apríl
Eignaliðir :
2000
2001
mótum
Gjaldeyrisforði
34.285
36.089
1.804
72
Markaðsskráð verðbréf
6.546
4.845
-1.701
81
Ríkissjóðs
3.682
1.993
-1.688
30
Annarra
2.865
2.852
-13
51
Kröfur á innlánsstofnanir
38.978
44.065
5.088
2.864
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir
13.074
22.121
9.048
1.678
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma
15.763
26.758
10.995
-2.064
Seðlar og mynt
8.672
8.484
-189
159
Almennar innstæður innlánsstofnana
2.495
2.490
-5
-200
Staða á bindireikningum innlánsstofnana
21.249
17.737
-3.512
2.362
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana
745
333
-412
-89
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana
759
4.142
3.382
1.754
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:
18.522
9.331
-9.191
2.136
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:
-12.119
-15.798
-3.678
-2.160
Kröfur á aðra, brúttó
52.207
66.305
14.098
4.580
Grunnfé:
32.416
28.711
-3.705
2.320
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó, sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 18/2001
7. maí 2001