Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
maí 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í maí 2001 og
frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um tæpan
milljarð króna í maí og nam 37 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 354
milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt
með vísitölu gengisskráningar, veiktist í mánuðinum um 5,9%. Erlend skammtímalán
bankans lækkuðu um 1,6 milljarða króna í mánuðinum og námu 25,2 milljörðum króna
í maílok. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó batnaði um 2,5 milljarða króna
vegna erlendra lánahreyfinga ríkissjóðs.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans
námu 4,8 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf
ríkissjóðs í eigu bankans námu 2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir lækkuðu um 1,5 milljarða króna í maí og námu 42,6 milljörðum
króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust í mánuðinum um
0,7 milljarða króna og voru 22,8 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 2 milljarða
króna í maí og voru neikvæðar um 13,8 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e.
nettóinnstæður ríkissjóðs námu 13,8 milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst
um 5,2 milljarða króna í maí og nam 33,9 milljörðum króna í lok hans.
Nánari
upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari
í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í milljónum króna
Staða í lok tímabils
Hreyfingar 2001
Eignaliðir :
Desember 2000
Maí 2001
Frá ára- mótum
Í maí
Gjaldeyrisforði
34.285
37.027
2.742
938
Markaðsskráð verðbréf
6.546
4.849
-1.698
3
Ríkissjóðs
3.682
2.035
-1.646
42
Annarra
2.865
2.813
-51
-39
Kröfur á innlánsstofnanir
38.978
42.567
3.590
-1.498
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir
13.074
22.819
9.746
698
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma
15.763
25.180
9.417
-1.578
Seðlar og mynt
8.672
8.607
-66
123
Almennar innstæður innlánsstofnana
2.495
2.273
-222
-217
Staða á bindireikningum innlánsstofnana
21.249
22.983
1.734
5.246
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana
745
503
-242
170
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana
759
1.977
1.218
-2.164
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:
18.522
11.847
-6.675
2.516
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:
-12.119
-13.782
-1.663
2.016
Kröfur á aðra, brúttó
52.207
65.470
13.262
-835
Grunnfé:
32.416
33.863
1.446
5.152
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.
Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður
þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum
skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir , þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en
ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 20/2001
7. júní 2001