Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok júní 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamtbreytingum í júní 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankansdróst saman um 1,2 milljarða króna í júní og nam 35,8 milljörðum króna í lokmánaðarins (jafnvirði 343 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengiíslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, styrktist um 0,6% ímánuðinum. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó nam 6,8 milljörðum króna, dróstsaman um 5 milljarða króna. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaðifyrir 2,5 milljarða króna.
Erlend skammtímalán bankans jukust um 3,8 milljarða króna í mánuðinum og námu29 milljörðum króna í júnílok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5 milljörðum króna í júnílok miðaðvið markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu lítillega í júní og námu 42,4milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust afturá móti í mánuðinum um 1,1 milljarð króna og voru 23,9 milljarðar króna í lokmánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,2 milljarðakróna í júní og voru neikvæðar um 13,5 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e.nettóinnstæður ríkissjóðs námu 13,5 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman um 3,9 milljarða króna í júnímánuði og nam 30milljörðum króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæðurþeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 28/2001
5. júlí 2001