Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok júlí 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamtbreytingum í júlí 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankansminnkaði um 1,6 milljarða króna í júlí og nam 34,2 milljörðum króna í lokmánaðarins (jafnvirði 342 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengiíslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 2,5% ímánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 0,7 milljarða króna í mánuðinum ognámu 28,3 milljörðum króna í júlílok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5 milljörðum króna í júlílok miðaðvið markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,8 milljarða króna í júlíog námu 40,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanirlækkuðu einnig lítillega í mánuðinum og voru 23,7 milljarðar króna í lokmánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 4,8 milljarðakróna í júlí og voru neikvæðar um 8,7 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e.nettóinnstæður ríkissjóðs námu 8,7 milljörðum króna.
Grunnfé bankans hækkaði lítillega í júlímánuði og nam það 30,1 milljarðikróna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæðurþeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 29/2001
7. ágúst 2001