Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 14. ágúst. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,9%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 28,9 milljarðar króna en á innlausn voru 26,5 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 21. ágúst 2001.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600