Meginmál

Íslendingur í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

ATH: Þessi grein er frá 27. ágúst 2001 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Ólafur Ísleifsson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðsSeðlabanka Íslands, mun taka sæti í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins íWashington DC um tveggja ára skeið frá næstu áramótum. Verður hann aðalfulltrúiNorðurlanda og Eystrasaltsríkja, sem saman eiga eitt sæti íframkvæmdastjórninni, og stýrir skrifstofu þeirra hjá sjóðnum.

Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er skipuð 24 fulltrúum sem ýmisteru skipaðir eða kjörnir af aðildarríkjum sjóðsins sem eru 183 að tölu.Framkvæmdastjórnin er æðsta vald í málefnum sjóðsins milli ráðherrafunda ogfjallar um efnahagsmál í einstökum löndum og heimsbúskapinn. Framkvæmdastjórnintekur ákvarðanir um mál sem snerta hið alþjóðlega fjármálakerfi og lánveitingartil einstakra aðildarríkja Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Ólafur Ísleifsson hefur stýrt alþjóðasviði Seðlabankans frá 1991. Hann hefurstarfað í Seðlabankanum frá 1983 með hléum meðan hann starfaði hjáAlþjóðagjaldeyrissjóðnum 1985-87 og var efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar ÞorsteinsPálssonar 1987-88. Hann lauk BS-prófi í stærðfræði frá Háskóla Íslands 1978 ogMS-prófi í hagfræði frá London School of Economics 1980.

Ólafur er kvæntur og á einn son.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnarSeðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 30/2001

28. ágúst 2001