Endurhverf verðbréfakaup fyrir 34,1 ma.kr. 20. september 2001
Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 18. september. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,9%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 34,1 milljarðar króna en á innlausn voru 29 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 25. september 2001.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.
Nr. 38/2001
18. september 2001