Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokseptember 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum íseptember 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um1,5 milljarða króna í september og nam 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins(jafnvirði 375 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslenskukrónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði um 2,8% í mánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 0,8 milljarða króna í mánuðinum ognámu 27,7 milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í septemberlokmiðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 2,4 milljarða króna íseptember og námu 43,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir lækkuðu um 2,5 milljarða króna í mánuðinum og voru 21,6milljarðar króna.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,7 milljarðakróna í september og voru neikvæðar um 10,2 milljarða króna, þ.e. nettóinnstæðurríkissjóðs námu 10,2 milljörðum króna.
Grunnfé bankans lækkaði í septembermánuði um 0,2 milljarða króna og nam 32,4milljörðum króna í lok mánaðarins.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæðurþeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 36/2001
4. október 2001