Nr. 42/2001
16. október 2001
Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 16. október. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfintil fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupaverðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,9%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu.Samtals bárust tilboð að fjárhæð 36,2 milljarðar króna en á innlausn voru 33,5milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 23. október 2001.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskiptiSeðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinnviðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson,framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.