Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. nóvember 2001 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokoktóber 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í október2001 og frá ársbyrjun 2001.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,3milljarða króna í október og nam 40,2 milljörðum króna í lok mánaðarins(jafnvirði 389 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslenskukrónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, veiktist um 1,6% í mánuðinum.Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 8,8 milljarða króna ímánuðinum. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó nam 26,7 milljörðum króna,styrktist um 16,5 milljarða króna í október vegna lánahreyfinga ríkissjóðs, sbr.frétt bankans nr. 35/2001 frá 28. sept. sl.

Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 14,2 milljarða króna í mánuðinum ognámu 13,5 milljörðum króna í októberlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í októberlokmiðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1milljarði króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 11,5 milljarða króna íoktóber og námu 54,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir hækkuðu um 1,5 milljarða króna í mánuðinum og voru 23,1milljarður króna í lok mánaðarins.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 32,8 milljarðakróna í október og voru neikvæðar um 43,1 milljarð króna í lok mánaðarins, þ.e.nettóinnstæður ríkissjóðs námu 43,1 milljarði króna.

Grunnfé bankans lækkaði í októbermánuði um 3,4 milljarða króna og nam 29milljörðum króna í lok mánaðarins.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæðurþeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 38/2001

6. nóvember 2001