Í samræmi við reglur umviðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfumverðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 6. nóvember. Samningstíminn er 14 dagar,en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn tilað kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,9%. Engin fjárhæðarmörk voru íuppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 39,3 milljarðar króna en á innlausnvoru 38,5 milljarðar króna. Næstauppboð er fyrirhugað 13. nóvember 2001.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverfviðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra áSeðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif álausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson,framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma569-9600.