Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 34,4 ma.kr.

ATH: Þessi grein er frá 27. nóvember 2001 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 27. nóvember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfintil fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 10,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 34,4 milljarðar króna en á innlausn voru 37,6 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 4. desember 2001.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.

Nr. 48/2001

27. nóvember 2001