Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 4. desember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 35,7 milljarðar króna en á innlausn voru 37,4 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 11. desember 2001.
Auk samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.
Fréttir Seðlabanka Íslands eru birtar á heimasíðu bankans um leið og þær eru gefnar út.
Frétt nr. 49/2001
4. desember 2001