Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok desember 2001 og til samanburðar í lok desember 2000ásamt breytingum í desember 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Þar semáramótauppgjöri og endurskoðun er ekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 2001bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanlegu uppgjöri.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,4 milljarða króna í desember ognam 36,6 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 355 milljónaBandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Í mánuðinum seldi Seðlabankinn gjaldeyriutan innlends gjaldeyrismarkaðar fyrir 5 milljarða króna og gerðigjaldmiðlaskiptasamning fyrir 4 milljarða króna. Erlend skammtímalán bankanshækkuðu um 2 milljarða króna í mánuðinum og námu 15 milljörðum króna í lok hans.
Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, styrktist um4,3% í mánuðinum.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í desemberlokmiðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,3 milljarða króna ídesember og námu 54,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir lækkuðu um 3,3 milljarða króna í mánuðinum og voru 22,8milljarðar króna í lok hans.
Seðlar og mynt í umferð fóru í fyrsta skipti yfir 9 milljarða króna og höfðuþar með vaxið um 0,5 milljarða króna frá síðustu áramótum.
Nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 8,3milljarða króna í desember og voru neikvæðar um 30,9 milljarða króna í lokmánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 30,9 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman í desember um 4,5 milljarða króna og nam 27,8milljörðum króna í lok mánaðarins.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæðurþeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 1/2002
9. janúar 2002
Leiðrétt