Meginmál

Breyting á starfrækslutíma stórgreiðslukerfis

ATH: Þessi grein er frá 16. janúar 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við lög um öryggi greiðslufyrirmæla ígreiðslukerfum nr. 90/1999 og reglur um aðgang að uppgjörsreikningum íSeðlabanka Íslands nr. 951/2000 starfrækir Seðlabanki Íslands stórgreiðslukerfivegna greiðslufyrirmæla sem eru að fjárhæð 25 milljónir króna eða hærri.Stórgreiðslukerfið hefur verið opið allan sólarhringinn. Fjölgreiðslumiðlun hf.starfrækir fjölgreiðslukerfi vegna greiðslufyrirmæla sem eru allt að 25milljónum króna.

Í samstarfi Seðlabanka Íslands og Fjölgreiðslumiðlunar hf. hefur aðundanförnu verið unnið að undirbúningi breytinga á íslenskum greiðslukerfum.Markmið þeirra er að laga íslensk greiðslukerfi að alþjóðlegum kröfum, einkum aðþví er varðar áhættustjórnun. Í því skyni er talið nauðsynlegt að takmarkaframkvæmd hárra greiðslufyrirmæla sem mest við almennan starfstímalánastofnana.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur því ákveðið að stórgreiðslukerfið verðifyrst um sinn starfrækt frá kl. 8.45 til kl. 18.00 á almennum viðskiptadögumviðskiptabanka og sparisjóða. Ákvörðunin byggir á 5. gr. reglna nr.951/2000.

Breyting þessi tekur gildi 20. janúar 2002.

Af hálfu Seðlabanka Íslands verður áfram unnið að þróunstórgreiðslukerfisins.

Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Ásgeirsson á fjármálasviði SeðlabankaÍslands í síma 569-9642.

Nr. 2/2002

16. janúar 2002