Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningiSeðlabanka Íslands í lok janúar 2002 og til samanburðar í lok desember 2001ásamt breytingum í janúar 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,8 milljarða króna í janúar og nam37,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 363 milljóna Bandaríkjadala ágengi í mánaðarlok). Eftirstöðvar gjaldmiðlaskiptasamnings sem Seðlabankinngerði í desember 2001 námu 2,9 milljörðum króna í lok janúar. Eftirstöðvarsamningsins renna út í áföngum í febrúar, mars og apríl. Erlend skammtímalánbankans hækkuðu um 3,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 18,7 milljörðum krónaí lok hans. Skammtímaskuldirnar hækkuðu m.a. vegna efnda á hluta fyrrgreindsgjaldmiðlaskiptasamnings. Gengi krónunnar hækkaði um 1,7% í janúar.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í janúarlokmiðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,2milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 8,9 milljarða króna íjanúar og námu 62,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir hækkuðu um 0,2 milljarða króna í mánuðinum og voru 23milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 3,1 milljarðkróna í janúar og voru neikvæðar um 34,2 milljarða króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans jókst í janúarmánuði um 1,5 milljarða króna og nam 29,3milljörðum króna í lok mánaðarins.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans íerlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans íspariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréfannarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfurbankans á innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfurbankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalánsem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkjagjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferðutan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 3/2002
6. febrúar 2002