Meginmál

Erlendur lánssamningur Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 12. febrúar 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í gær var undirritaður samningur á milli Seðlabanka Íslands og Union Bank ofNorway um lánsheimild að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala sem samsvarartæplega 21 milljarði króna. Samningurinn er til fimm ára og felur í sér hagstæðkjör fyrir Seðlabankann.

Samningurinn við Union Bank of Norway kemur til viðbótar sambærilegumsamningum um lánsheimildir við nokkrar aðrar fjármálastofnanir. Heildarfjárhæðþeirra nemur nú liðlega 90 milljörðum króna og er mjög lítill hluti þeirranýttur. Auk þess hefur Seðlabankinn ósamningsbundinn aðgang að lánsfé hjáfjölmörgum erlendum viðskiptabönkum.

Hinn nýi lánssamningur treystir enn frekar erlenda stöðu Seðlabankans.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Jón Þ.Sigurgeirsson framkvæmdastjóri alþjóðasviðs í síma 569-9600.

Nr. 4/2002

12. febrúar 2002