Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. mars 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokfebrúar 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í febrúar2002 og frá ársbyrjun 2002.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um einn milljarð króna í febrúar ognam 36,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 363 milljónaBandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Eftirstöðvar gjaldmiðlaskiptasamnings semSeðlabankinn gerði í desember 2001 námu 1,9 milljörðum króna í lok febrúar ogrenna út í áföngum í mars og apríl. Erlend skammtímalán bankans jukust um 2,4milljarða króna í mánuðinum og námu 21,1 milljarði króna í lok hans.Skammtímaskuldir jukust m.a. vegna efnda á hluta fyrrgreinds skiptasamnings ogvegna lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinumum 2,2%.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í febrúar lokmiðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,2milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 31,8 milljarða króna frááramótum og námu 85,9 milljörðum króna í lok febrúar. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir lækkuðu um 17,3 milljarða króna á sama tímabili og voru 5,5milljarðar króna í lok mánaðarins. Þessar miklu sveiflur má að langmestu leytirekja til þess að í janúar sl. fékk Kaupþing banki hf. starfsleyfi semviðskiptabanki og fluttist þar með frá öðrum fjármálastofnunum tilinnlánsstofnana í efnahagsreikningi og skýrslum Seðlabankans.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,5 milljarðakróna í febrúar og voru neikvæðar um 32,7 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e.nettóinnstæður ríkissjóðs námu 32,7 milljörðum króna.

Grunnfé bankans jókst í febrúar um 3,2 milljarða króna og nam 34,7 milljörðumkróna í lok mánaðarins. Hækkun grunnfjár má einnig að hluta rekja til breytingarKaupþings úr annarri fjármálastofnun í innlánsstofnun, þar eð innstæðurinnlánsstofnana í Seðlabankanum teljast með grunnfé.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans íerlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans íspariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréfannarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfurbankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfurbankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalánsem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkjagjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferðutan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 6/2002

6. mars 2002