Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 52,1 milljarð króna

ATH: Þessi grein er frá 19. mars 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 19. mars. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 52,1 milljarðar króna en á innlausn voru 43,8 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 26. mars n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nr. 12/2002

19. mars 2002