Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokmars 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í mars 2002 ogfrá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,3milljarða króna í mars og nam 36 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði362 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalánbankans lækkuðu um 1,1 milljarð króna í mánuðinum og námu 20 milljörðum króna ílok hans. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um0,02%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,2 milljarði króna ímarslok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankansnámu 2,2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanirjukust í mars um 4,5 milljarða króna og námu 90,4 milljörðum króna í lokmánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námuþær 5,5 milljörðum króna.
Seðlar og mynt í umferð jukust um rúmlegahálfan milljarð króna í mars.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir hækkuðu um 1,3 milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 31,4milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 31,4milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst í mars um 5,9 milljarða króna og nam40,5 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórarSeðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans íerlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans íspariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréfannarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfurbankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfurbankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalánsem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkjagjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferðutan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarrafjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum ogbundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður semþeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinnákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta laginettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma aðfrádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfurSeðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila viðSeðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendarbrúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þessteljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana íSeðlabankanum.
Nr. 12/2002
5. apríl 2002