Fara beint í Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 30,6 milljarða króna9. apríl 2002

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 9. apríl.  Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 9,6%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 30,6 milljarðar króna en á innlausn voru 38,7 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 16. apríl n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.

 Nr. 15/2002

9. apríl 2002