Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fórfram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 16apríl. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrrieigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 9,6%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 36 milljarðar króna en á innlausn voru 49,5 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 23. apríl n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9600.
Nr. 16/2002
16. apríl 2002