Meginmál

Moody's Investor Service: óbreytt mat á horfum fyrir lánshæfiseinkunn Íslands

ATH: Þessi grein er frá 16. apríl 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Minnkandi þjóðhagslegt ójafnvægi styður óbreytt mat á horfum fyrirlánshæfiseinkunn Íslands, Aa3, á lánum í erlendri mynt.

Matsfyrirtækið Moody's Investors Service tilkynnti í dag að minnkandiþjóðhagslegt ójafnvægi styddi óbreytt mat á horfum fyrir lánshæfiseinkunníslenska ríkisins. Í nýrri ársskýrslu nefnir Moody's nokkrar ástæður fyriróbreyttum horfum á lánshæfiseinkunnum Íslands, sem eru Aa3 á lánum íerlendri mynt og Aaa á skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs í íslenskum krónum. Þar ernefnt þróað hagkerfi, háar og jafnar þjóðartekjur á mann og stöðugtstjórnmálaástand. Skipulagsumbætur liðins áratugar juku fjölbreytni íefnahagslífinu, leiddu til mikils hagvaxtar, verðstöðugleika og verulega minniskulda hins opinbera.

Áhyggjur Moody's af þjóðhagslegu ójafnvægi í kjölfar mikils hagvaxtar semvarði í nokkur ár hafa sefast að hluta vegna umtalsverðrar aðlögunar á liðnu árisem réttlætir óbreyttar horfur (fyrir lánshæfismatið). Viðskiptahallinn minnkaðium meira en helming í kjölfar mikillar gengislækkunar og vegna þess að stórumfjármagnsfrekum verkefnum á vegum erlendra aðila er nú lokið. Þrátt fyrir aðerlend nettóstaða þjóðarbúsins hafi versnað verulega á árinu 2001 er búist viðað minnkandi viðskiptahalli og styrking krónunnar að undanförnu bæti erlendskuldahlutföll þjóðarbúsins þegar á þessu ári.

Matsfyrirtækið greinir enn fremur frá því í skýrslu sinni að komið hafi áóvart hve lending efnahagslífsins hafi verið mjúk fram að þessu. Hagvöxtur hafiverið 3 % þrátt fyrir hraðvaxandi verðbólgu og fyrstu vísbendingar um aukiðatvinnuleysi. Verðbólgumarkmið Seðlabankans var tekið upp við erfiðar aðstæðurog verðbólgan var ítrekað vanmetin. Skuldir og greiðslubyrði ríkissjóðs eru enní góðu horfi, þrátt fyrir að gengislækkunin hafi hækkað umtalsvert þann hlutaskuldanna sem eru í erlendri mynt og að gert sé ráð fyrir að rekstrarafgangurríkissjóðs verði að engu á þessu ári um leið og landsframleiðsla dregstsaman.

Moody's lagði áherslu á að ýmsir óvissuþættir væru enn til staðar,sérstaklega verðbólguhorfur þar sem kjarasamningar kynnu að verða lausir í maí.Vegna hárra erlendra skulda er sérstaklega mikilvægt að hæfilegt jafnvægi ríki ámilli stefnunnar í ríkisfjármálum, peningamálum og kjaramálum til að sjálfbærhagvöxtur náist til lengri tíma litið. Fari t.d. svo að krónan haldi áfram aðstyrkjast, hagvöxtur verði meiri en áætlað er eða hafist verði handa viðfjárfrekar framkvæmdir er óvíst að viðskiptahallinn minnki frekar. Það myndivekja upp áhyggjur af bankakerfinu sem jók erlendar skuldir sínar mjög á liðnumuppgangsárum. Afleiðingin er lakari gæði eigna sem verð tilefni aukinnaafskriftaframlaga þótt helstu bankarnir sem njóta lánshæfismats séu reknir meðhagnaði.

Á heildina litið er Moody's þeirrar skoðunar að aðlögunarhæfni Ísland ísögulegu tilliti dugi vel ef harðnar á dalnum. Traust staða opinberra fjármálaog greiður aðgangur að erlendu lánsfé veita nægilegt svigrúm til að bregðast viðerfiðleikum þrátt fyrir nokkra óvissu.

Nánari upplýsingar veita Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnarSeðlabanka Ísland og Jón Þ. Sigurgeirsson framkvæmdastjóri alþjóðasviðs bankansí síma 569-9600.

Nr. 13/2002

16. apríl 2002