Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 7. maí 2002
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í apríl 2002 og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,9 milljarða króna í apríl og nam 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 404 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 9,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 10,5 milljörðum króna í lok hans. Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 3,9%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í apríl um 11,8 milljarða króna og námu 78,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 5,4 milljarða króna í apríl og voru neikvæðar um 36,8 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 36,8 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman í apríl um 4,5 milljarða króna og nam 36,1 milljarði króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
| Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans | ||||
|---|---|---|---|---|
Í milljónum króna | ||||
Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2002 | |||
Desember | Apríl | Frá ára- | Í apríl | |
Eignaliðir : | 2001 | 2002 | mótum | |
Gjaldeyrisforði | 36.573 | 37.954 | 1.381 | 1.922 |
Markaðsskráð verðbréf | 5.099 | 4.622 | -477 | -556 |
Ríkissjóðs | 2.144 | 1.668 | -477 | -556 |
Annarra | 2.954 | 2.954 | 0 | 0 |
Kröfur á innlánsstofnanir | 54.053 | 78.587 | 24.534 | -11.800 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 22.774 | 5.518 | -17.256 | 54 |
Skuldaliðir: | ||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 14.979 | 10.452 | -4.526 | -9.526 |
Seðlar og mynt | 9.174 | 8.853 | -321 | -228 |
Almennar innstæður innlánsstofnana | 965 | 3.459 | 2.494 | 1.109 |
Staða á bindireikningum innlánsstofnana | 17.678 | 23.764 | 6.086 | -5.339 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 837 | 387 | -450 | -940 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 1.288 | 1.037 | -252 | -65 |
Liðir til skýringar : | ||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: | 21.595 | 27.502 | 5.907 | 11.448 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: | -31.099 | -36.767 | -5.668 | -5.413 |
Kröfur á aðra, brúttó | 76.932 | 84.203 | 7.271 | -11.760 |
Grunnfé: | 27.817 | 36.076 | 8.260 | -4.458 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 16/2002
7. maí 2002
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
apríl 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í apríl 2002
og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,9
milljarða króna í apríl og nam 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði
404 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans
lækkuðu um 9,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 10,5 milljörðum króna í lok
hans. Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi íslensku
krónunnar styrktist í mánuðinum um 3,9%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans
námu 4,6 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð
verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna.
Kröfur
Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í apríl um 11,8 milljarða króna og námu
78,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir
breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 5,4 milljarða
króna í apríl og voru neikvæðar um 36,8 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e.
nettóinnstæður ríkissjóðs námu 36,8 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst
saman í apríl um 4,5 milljarða króna og nam 36,1 milljarði króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka
Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
|
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans |
||||
|
Í milljónum króna |
||||
|
Staða í lok tímabils |
Hreyfingar 2002 |
|||
|
Desember |
Apríl |
Frá ára- |
Í apríl |
|
|
Eignaliðir : |
2001 |
2002 |
mótum |
|
|
Gjaldeyrisforði |
36.573 |
37.954 |
1.381 |
1.922 |
|
Markaðsskráð verðbréf |
5.099 |
4.622 |
-477 |
-556 |
|
Ríkissjóðs |
2.144 |
1.668 |
-477 |
-556 |
|
Annarra |
2.954 |
2.954 |
0 |
0 |
|
Kröfur á innlánsstofnanir |
54.053 |
78.587 |
24.534 |
-11.800 |
|
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir |
22.774 |
5.518 |
-17.256 |
54 |
|
Skuldaliðir: |
||||
|
Erlendar skuldir til skamms tíma |
14.979 |
10.452 |
-4.526 |
-9.526 |
|
Seðlar og mynt |
9.174 |
8.853 |
-321 |
-228 |
|
Almennar innstæður innlánsstofnana |
965 |
3.459 |
2.494 |
1.109 |
|
Staða á bindireikningum innlánsstofnana |
17.678 |
23.764 |
6.086 |
-5.339 |
|
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana |
837 |
387 |
-450 |
-940 |
|
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana |
1.288 |
1.037 |
-252 |
-65 |
|
Liðir til skýringar : |
||||
|
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó: |
21.595 |
27.502 |
5.907 |
11.448 |
|
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó: |
-31.099 |
-36.767 |
-5.668 |
-5.413 |
|
Kröfur á aðra, brúttó |
76.932 |
84.203 |
7.271 |
-11.760 |
|
Grunnfé: |
27.817 |
36.076 |
8.260 |
-4.458 |