Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands varviðskiptahalli við útlönd 1,5 milljarðar króna á fyrsta fjórðungi ársins. Á samatíma í fyrra var viðskiptahallinn 18,5 milljarðar króna. Á föstu gengi minnkaðihallinn um 19,5 milljarða króna[1]. Minni viðskiptahalli stafar einkum afsamdrætti í innflutningi vöru og þjónustu og í þáttagjöldum, enútflutningur jókst lítillega frá fyrra ári. Afgangur á vöruskiptajöfnuði nam 5,7milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi. Á sama tíma í fyrra var 7,1 milljarðskróna vöruskiptahalli. Halli á þjónustuviðskiptum var 1,3 milljarðar króna enhann var 2,4 milljarðar króna á sama tíma í fyrra. Hreinar þáttatekjur voruneikvæðar um 5,5 milljarða króna sem er þremur milljörðum króna lægri fjárhæð ená sama tíma í fyrra. Þar munar mest um minni vaxtabyrði af erlendum skuldumvegna vaxtalækkana á erlendum lánamörkuðum.
Innstreymi fjár mældist 11,1 milljarður króna á fyrsta ársfjórðungi, fyrst ogfremst vegna erlendrar lántöku í formi skuldabréfaútgáfu og bankalána.Fjárútstreymi vegna erlendra verðbréfakaupa nam 9,6 milljörðum króna sem var nærhelmingi meira en á sama tímabili í fyrra. Beinar fjárfestingar Íslendingaerlendis námu 1,4 milljörðum króna en fjárfestingar erlendra aðila á Íslandivoru litlar sem engar. Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst lítillega á fyrstafjórðungi ársins og nam hann 36 milljörðum króna í lok mars 2002.
19/2002
6. júní 2002