Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 6. júní 2002

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok maí 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í maí 2002 og frá ársbyrjun 2002.  
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 1,6 milljarða króna í maí og nam 36,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 449 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 4,6 milljarða króna í mánuðinum og námu 15 milljörðum króna í lok hans.  Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 0,3%.

Prentvæn útgáfa fréttar (pdf-skjal)

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna.  
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir stóðu í stað í maí og námu 78,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í mánaðarlok.  
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 6,5 milljarða króna í maí og voru neikvæðar um 30,3 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 30,3 milljörðum króna.
Grunnfé bankans breyttist óverulega í maí og nam það 36,3 milljörðum króna í mánaðarlok. 
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Í milljónum króna

Staða í lok tímabils

Hreyfingar 2002

Desember

Maí

Frá ára-

Í maí

Eignaliðir :

2001

2002

mótum

Gjaldeyrisforði

36.573

36.399

-175

-1.555

Markaðsskráð verðbréf

5.099

4.629

-470

7

Ríkissjóðs

2.144

1.675

-470

7

Annarra

2.954

2.954

0

0

Kröfur á innlánsstofnanir

54.053

78.746

24.694

160

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir

22.774

5.572

-17.202

54

Skuldaliðir:

Erlendar skuldir til skamms tíma

14.979

15.010

32

4.558

Seðlar og mynt

9.174

9.093

-81

240

Almennar innstæður innlánsstofnana

965

1.129

164

-2.330

Staða á bindireikningum innlánsstofnana

17.678

26.077

8.399

2.312

Almennar innstæður annarra fjármálastofnana

837

489

-348

102

Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana

1.288

1.222

-66

185

Liðir til skýringar :

Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:

21.595

21.388

-206

-6.113

Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:

-31.099

-30.283

816

6.484

Kröfur á aðra, brúttó

76.932

84.413

7.481

210

Grunnfé:

27.817

36.298

8.481

222

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr.18 /2002
6. júní 2002

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok maí 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í maí 2002 og frá ársbyrjun 2002.  
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 1,6 milljarða króna í maí og nam 36,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 449 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 4,6 milljarða króna í mánuðinum og námu 15 milljörðum króna í lok hans.  Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 0,3%.

Prentvæn útgáfa fréttar (pdf-skjal)

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna.  
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir stóðu í stað í maí og námu 78,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í mánaðarlok.  
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 6,5 milljarða króna í maí og voru neikvæðar um 30,3 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 30,3 milljörðum króna.
Grunnfé bankans breyttist óverulega í maí og nam það 36,3 milljörðum króna í mánaðarlok. 
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
 Í milljónum króna
     
     Staða í lok tímabils    Hreyfingar 2002
 DesemberMaíFrá ára-Í maí

Eignaliðir :

20012002mótum 
     
Gjaldeyrisforði36.57336.399-175-1.555
Markaðsskráð verðbréf5.0994.629-4707
Ríkissjóðs2.1441.675-4707
Annarra2.9542.95400
Kröfur á innlánsstofnanir54.05378.74624.694160
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir22.7745.572-17.20254
     
Skuldaliðir:

Erlendar skuldir til skamms tíma14.97915.010324.558
Seðlar og mynt9.1749.093-81240
Almennar innstæður innlánsstofnana9651.129164-2.330
Staða á bindireikningum innlánsstofnana17.67826.0778.3992.312
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana837489-348102
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.2881.222-66185
     
Liðir til skýringar :

   Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:21.59521.388-206-6.113
   Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:-31.099-30.2838166.484
   Kröfur á aðra, brúttó76.93284.4137.481210
   Grunnfé:27.81736.2988.481222