Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 34,3 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 11. júní 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 11. júní. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 8,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 34,3 milljarðar króna en á innlausn voru 34,5 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 18. júní n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr.24/2002

11. júní 2002