Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 44,4 milljarða króna.

ATH: Þessi grein er frá 18. júní 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands viðlánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 18. júní. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin tilfyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 8,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 44,4 milljarðar króna en á innlausn voru 41,3 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 25. júní n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Gerður Ísberg, staðgengill framkvæmdastjórapeningamálasviðs, í síma 569-9600.

Nr. 25/2002

18. júní 2002